Skilmálar
Síðast uppfært: 26. október 2026
Þessir skilmálar gilda um áskrift að Stimpli hjá aithjonusta.is. Með því að skrá þig samþykkir þú þá.
1. Seljandi
aithjonusta.is · Steinar Gunnbjörnsson
Kt. 170904-2220
Austurmörk 20, 810 Hveragerði
aithjonusta.is@gmail.com
Seljandi er ekki á virðisaukaskattsskrá að svo stöddu og innheimtir því ekki virðisaukaskatt (sjá 4. grein).
2. Þjónustan
Stimpill er stafrænt stimpilkort í síma viðskiptavina þinna (Apple Wallet, Google Wallet eða vefkort), með skanna fyrir starfsfólk og skilaboðum á lásskjá.
Þjónustan er ætluð fyrirtækjum og einyrkjum í atvinnurekstri, ekki einstaklingum til einkanota.
Í Stimpli getur eitt fyrirtæki (áskrifandi) haft margar verslanir og mörg kort í sama aðgangi. Áskrifandinn ber ábyrgð á öllu sem gert er í aðganginum, þar á meðal á kortum, verslunum, skilaboðum til korthafa og notkun starfsfólks á PIN-númerinu, og á að gæta þess að lykilorð og PIN-númer berist ekki óviðkomandi.
3. Prufutími
Stimpill hefst á 30 daga fríum prufutíma án þess að skrá þurfi kort; að honum loknum hætta kortin að taka við nýjum stimplum nema áskrift sé virkjuð. Þegar þú skráir greiðslukort er það aðeins staðfest (0 kr.) og fyrst rukkað þegar prufutímanum lýkur. Ef þú segir upp á prufutímanum er aldrei rukkað.
4. Verð og greiðslur
- Verð eru þau sem birt eru á aithjonusta.is þegar þú skráir þig, og eru á mánuði.
- Stimpill kostar 6.990 kr. á mánuði fyrir eina verslun. Fyrirtæki með tvær eða fleiri verslanir greiða 4.490 kr. á mánuði fyrir hverja verslun. Fjöldi korta í hverri verslun er ótakmarkaður.
- Öll verð eru án virðisaukaskatts (VSK). Á meðan seljandi er ekki á virðisaukaskattsskrá er enginn VSK innheimtur. Ef seljandi skráist á virðisaukaskattsskrá bætist VSK, samkvæmt gildandi hlutfalli, ofan á verðið. Við látum þig vita í tölvupósti með minnst 30 daga fyrirvara og þú getur sagt upp áður en það tekur gildi.
- Gjaldið miðast við fjölda verslana í aðganginum. Ef verslunum fjölgar eða fækkar breytist gjaldið frá og með næstu mánaðargreiðslu, og við látum þig vita af nýju upphæðinni í tölvupósti. Slík breyting telst ekki verðbreyting í skilningi 8. greinar.
- Fyrsta greiðsla er tekin af kortinu þínu þegar prufutímanum lýkur, og síðan sjálfkrafa mánaðarlega á sama degi þar til þú segir upp.
- Greiðslur eru afgreiddar af Teya. Kortanúmerið þitt fer aldrei um okkar kerfi.
- Þú færð reikning í tölvupósti eftir hverja greiðslu.
- Ef greiðsla tekst ekki reynum við aftur, allt að þrisvar sinnum. Takist það ekki er áskriftin stöðvuð og þú látin(n) vita í tölvupósti. Stimpilkort sem korthafar eru þegar með hætta þá að taka við nýjum stimplum þar til áskrift er virkjuð á ný.
5. Uppsögn
Þú getur sagt upp hvenær sem er á aithjonusta.is/afskra eða með því að senda okkur tölvupóst. Engin binding er á áskriftinni.
Uppsögn tekur gildi strax og ekkert frekar er rukkað. Greitt mánaðargjald fyrir yfirstandandi tímabil er ekki endurgreitt.
6. Þínar skyldur
- Að gefa réttar upplýsingar við skráningu og láta vita ef þær breytast.
- Að nota þjónustuna aðeins gagnvart þínum eigin viðskiptavinum.
- Í Stimpli má senda korthöfum skilaboð um eigið fyrirtæki, svo sem tilboð, nýjungar og stöðu kortsins, enda hafa korthafar sjálfir sótt kortið og geta slökkt á skilaboðum í símanum. Óheimilt er að senda efni sem er villandi, ólögmætt eða ótengt fyrirtækinu, eða að skrá korthafa án þeirra samþykkis.
7. Rekstur þjónustunnar og ábyrgð
Við leggjum okkur fram um að þjónustan sé alltaf virk, en hún byggir á þjónustu þriðju aðila, svo sem Apple, Google og hýsingaraðila, og við getum ekki ábyrgst að hún sé aldrei trufluð. Ef truflun verður látum við þig vita eins fljótt og hægt er.
Við berum ekki ábyrgð á óbeinu tjóni, svo sem töpuðum viðskiptum eða hagnaði. Ábyrgð okkar takmarkast í öllum tilvikum við þau gjöld sem þú hefur greitt á síðustu þremur mánuðum.
8. Breytingar
Ef við breytum verði eða þessum skilmálum látum við þig vita í tölvupósti með minnst 30 daga fyrirvara. Þú getur alltaf sagt upp áður en breytingin tekur gildi.
9. Persónuupplýsingar
Um meðferð persónuupplýsinga gildir persónuverndarstefna okkar.
Upplýsingar um viðskiptavini þína (korthafa í Stimpli) vinnum við fyrir þína hönd sem vinnsluaðili, og þú ert ábyrgðaraðili þeirra. Ákvæði þessarar greinar teljast vinnslusamningur í skilningi 28. gr. reglugerðar (ESB) 2016/679 og laga nr. 90/2018. Við skuldbindum okkur til að:
- vinna upplýsingarnar eingöngu til að veita þjónustuna og samkvæmt þínum fyrirmælum, sem felast í stillingum og notkun þjónustunnar;
- tryggja að aðeins þeir hafi aðgang að upplýsingunum sem þurfa þess vegna þjónustunnar, og að þeir séu bundnir trúnaði;
- viðhafa viðeigandi öryggisráðstafanir, svo sem dulkóðaðar tengingar, aðgangsstýringu og dulkóðuð (hashed) lykilorð og PIN-númer;
- nota aðeins þá undirvinnsluaðila sem taldir eru upp í persónuverndarstefnunni og láta þig vita með tölvupósti áður en nýjum er bætt við, svo þú getir andmælt eða sagt upp;
- aðstoða þig við að svara beiðnum korthafa og annarra um aðgang, leiðréttingu eða eyðingu;
- láta þig vita án ótilhlýðilegrar tafar, og eigi síðar en innan 48 klukkustunda, ef öryggisbrestur verður sem varðar upplýsingarnar;
- eyða upplýsingunum eigi síðar en 12 mánuðum eftir að áskrift lýkur, eða fyrr að þinni beiðni, og afhenda þér þær áður ef þú óskar þess;
- veita þér þær upplýsingar sem þarf til að sýna fram á að þessum skyldum sé fylgt.
Ef fyrirtækið þitt þarf sérstakan, undirritaðan vinnslusamning, sendu okkur línu.
10. Lög og varnarþing
Um skilmálana gilda íslensk lög. Rísi ágreiningur sem ekki leysist með samkomulagi skal reka mál fyrir Héraðsdómi Suðurlands.
Hafa samband
Spurningar um skilmálana? Sendu okkur línu á aithjonusta.is@gmail.com.