Persónuverndarstefna
Síðast uppfært: 22. október 2026
Hér útskýrum við hvaða persónuupplýsingar aithjonusta.is vinnur með, af hverju, hverjir aðrir koma að vinnslunni og hvaða rétt þú hefur. Stefnan byggir á lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
1. Hver ber ábyrgð
aithjonusta.is · Steinar Gunnbjörnsson
Kt. 170904-2220 · Austurmörk 20, 810 Hveragerði
aithjonusta.is@gmail.com
2. Upplýsingar um áskrifendur
Þegar fyrirtæki skráir sig í áskrift vinnum við með:
- Nafn fyrirtækis, netfang og símanúmer.
- Valda áskrift, greiðslusögu og reikninga.
- Tegund korts og síðustu fjóra tölustafi þess, ásamt greiðslutákni (token) frá Teya. Kortanúmerið sjálft fer aldrei um okkar kerfi.
Tilgangurinn er að veita þjónustuna, innheimta áskriftargjöld og senda reikninga og tilkynningar um áskriftina. Grundvöllur vinnslunnar er samningurinn við þig og, hvað bókhald varðar, lagaskylda.
3. Fyrirspurnir
Ef þú sendir okkur fyrirspurn í gegnum vefinn vinnum við með nafn fyrirtækis, netfang, símanúmer og skilaboðin sjálf, eingöngu til að svara þér. Grundvöllurinn er lögmætir hagsmunir af því að svara fyrirspurnum.
4. Upplýsingar um viðskiptavini áskrifenda
Stimpill (stafræn stimpilkort): þegar þú færð stimpilkort hjá fyrirtæki sem notar Stimpil vinnum við með fornafn þitt, símanúmer, fjölda stimpla og hvenær kortið var stimplað eða verðlaun innleyst. Ef kortið er í Apple Wallet geymum við líka nafnlaust auðkenni símans svo hægt sé að uppfæra kortið og birta skilaboð frá fyrirtækinu. Ef fyrirtækið er með fleiri en eina verslun skráum við líka í hvaða verslun kortið var sótt og stimplað. Fyrirtækið er ábyrgðaraðili þessara upplýsinga og við vinnum þær fyrir þess hönd. Þú getur slökkt á skilaboðum í Wallet hvenær sem er, og fengið kortinu eytt með því að hafa samband við fyrirtækið eða okkur.
5. Aðrir sem koma að vinnslunni
Við seljum aldrei persónuupplýsingar. Eftirtaldir þjónustuaðilar vinna þær fyrir okkur, eingöngu til að þjónustan virki:
- Teya: kortagreiðslur (Ísland/EES).
- Supabase: gagnagrunnur fyrir áskriftir.
- Netlify: hýsing vefsins.
- Resend: sending tölvupósts (Írland).
- Apple: uppfærslur og skilaboð á Stimpilkortum í Apple Wallet (Bandaríkin).
- Google: stimpilkort í Google Wallet (Bandaríkin/EES).
- OpenStreetMap (Nominatim): leit að heimilisföngum verslana. Engar upplýsingar um korthafa eru sendar.
Þegar upplýsingar eru fluttar út fyrir Evrópska efnahagssvæðið er það gert á grundvelli viðurkenndra heimilda, svo sem staðlaðra samningsákvæða framkvæmdastjórnar ESB eða gagnaverndarramma ESB og Bandaríkjanna.
6. Hversu lengi
- Upplýsingar um áskrifendur eru geymdar á meðan áskrift er virk.
- Reikningar og bókhaldsgögn eru geymd í sjö ár, eins og lög um bókhald krefjast.
- Fyrirspurnum er eytt eigi síðar en 12 mánuðum eftir að þær berast.
- Upplýsingum um viðskiptavini áskrifenda er eytt eigi síðar en 12 mánuðum eftir að áskrift lýkur, eða fyrr að beiðni áskrifandans.
7. Vafrakökur
Vefurinn notar engar rakningar- eða auglýsingakökur. Greiðslugluggi Teya getur notað nauðsynlegar kökur á meðan þú skráir kortið.
8. Þinn réttur
Þú átt rétt á að fá aðgang að upplýsingum um þig, fá þær leiðréttar eða eytt, andmæla vinnslu og fá upplýsingarnar afhentar. Sendu okkur línu á aithjonusta.is@gmail.com og við svörum innan mánaðar.
Ef þú ert ósátt(ur) við meðferð okkar á upplýsingunum getur þú kvartað til Persónuverndar.
9. Breytingar
Ef við breytum stefnunni með þeim hætti að það skipti máli látum við áskrifendur vita í tölvupósti.